HNAKKAKAST - Í framleiðslu
HNAKKAKAST — GUL / FJÓLUBLÁ ÚTGÁFA
Innblásin af íslenskri arfleifð, klassískri glímu og djörfum vintage íþróttalitunum frá liðinni tíð.
HNAKKAKAST er hluti af Frímerkjasafni HÖFUÐWERK þar sem hvert patch sækir innblástur í gömul íslensk frímerki og þjóðlega sögu Íslands.
Patchið sýnir glímu — eina elstu íþrótt Íslands þar sem tækni, jafnvægi og styrkur mætast í hefð sem hefur lifað með þjóðinni í gegnum aldirnar.
Nafnið Hnakkakast kemur frá einu þekktasta glímubragði Íslands og endurspeglar kraftinn og karakterinn í þessari djörfu litasamsetningu. Gullguli fronturinn og djúpfjólubláa derið og net bakhliðin skapa sterkt retro sport útlit með áhrifum frá klassískum keppnisbúningum og vintage sportswear menningu.
Upplýsingar
-
5-panel trucker snið
-
Bogið der
-
Ofinn patch innblásinn af gömlu íslensku frímerki
-
Glímu myndskreyting á patchi
-
Gullgulur frontur
-
Fjólublátt der og net
-
Contrast saumar
-
Stillanleg lokun
-
Hannað á Íslandi
Litur
-
Gullgult / Fjólublátt
Stærð
OSFA — Ein stærð passar flestum
Athugið
Myndir af vörunni eru til kynningar og geta því verið örlítið frábrugðnar endanlegri framleiðsluvöru hvað varðar liti, smáatriði, efni og áferð.
HÖFUÐWERK — Frímerkjasafnið
Hönnun innblásin af íslenskri sögu, gömlum frímerkjum og norrænni arfleifð.